Cerec krónur
Cerec krónur og fyllingar byggja á nýrri tækni þar sem sjúklingur þarf einungis að koma einu sinni til að fá krónuna eða fyllinguna. Áður fyrr þurfti a.m.k. tvær heimsóknir og með tilheyrandi biðtíma og bráðabirgðalausnum þar til lokið hafði verið við smíði á krónum. Cerec tæknin er byggð á tölvutækni og þrívíddar myndatökum af tönninni, króna er svo hönnuð í tölvu, og krónan framleidd í sérstöku tæki á tannlæknastofunni. Svona meðferð tekur yfirleitt um 1 – 1,5 klst.
