Tannlýsing
Áður en byrjað er að lýsa tennur er mjög mikilvægt að gerð sé ítarleg skoðun á tönnum hjá tannlækni og tennur hreinsaðar með sandblæstri. Ef um tannskemmdir er að ræða er eindregið mælt með að þær séu lagfærðar áðun en lýsing hefst.
Geta allir látið lýsa tennurnar?
Það verður tannlæknir að meta. Gular tennur lýsast betur og hraðar en tennur með blágráum tónum.
Hvað gerist?
Lýsingarefnið fer inn í glerunginn og tannbeinið. Talið er að súrefnið tengist við litarefnið og leysi það upp þannig að tönnin verður hvítari. Litarefni í tannbeini er mun erfiðara viðfangs og tekur lengri tíma að fjarlægja heldur en litarefni í glerungi.
Lýsing tanna í tannlæknastól.
Þetta er ný tækni. Tennur eru lýstar í tannlæknastólnum og tekur meðferðin 1 – 1,5 klst. Hér er notað sterkt lýsingarefni og hita og ljósgjafi notaður til að flýta lýsingunni, oft þarf fólk að koma aftur til að ná fram lýsingunni sem óskað er eftir. Lýsingin getur valdið viðkvæmni tanna, þó eru margir sem ekki finna fyrir óþægindum. Ef einkenna verður vart hverfa þau oftast á 12 -24 klst.
Fyrst er lýst í tannlæknastól og síðan búnar til lýsingarskinnur til að nota heima. Þetta er besta mögulega meðferðin þar sem lýsing fer hratt af stað og er viðhaldið heima fyrir.
Hvíta og brúna bletti í glerungi getur tannlæknir stundum fjarlægt með slípun glerungs.
Rótfylltar tennur sem hafa dökknað getur tannlæknir oft lýst innanfrá eða smíðað yfir þær postulínsskeljar.
Lýsingarskinnur
