Börnin
Blessuð börnin...
Sum börn koma aðeins á tannlæknastofur þegar eitthvað er að og þurfa þá stundum á mikilli tannlæknismeðferð að halda. Það er því ekkert skrítið að þessi börn séu ekkert of hrifin af því að koma aftur.
Gott er að leyfa börnum að koma í einn tíma til tannlæknis bara til að sjá græjurnar og fikta í þeim - flestum börnum finnst þær mjög áhugaverðar og skemmtilegar. Einnig er gott að leyfa þeim að taka með sér dót að heiman þegar komið er í heimsókn til tannlæknis - þeim til halds og trausts.
Að taka stunguna úr nálinni.
Þegar kemur að því að deyfa barn eru það yfirleitt foreldrarnir sem eru stressaðir og óstöðugir frekar en barnið. Því er mikilvægt að gera eins lítið úr þessu og hægt er, því í minningunni er nálin slæm ef hún er gerð slæm.
Ef barnið hins vegar hefur áttað sig á því sem er að gerast og líkar það ekki, getur verið erfitt að ná til þess og því er undirbúningur heima fyrir afar mikilvægur. Það hjálpað að ræða tannlæknaheimsóknina á jákvæðum nótum og jafnvel að leyfa bangsa eða dúkku að setjast í stólinn og fá deyfingu á undan barninu. Einnig ef foreldrið sjálft þarf á meðferð að halda er ágætt að foreldrið setjist sjálft í stólinn á undan og sýni hversu hugrakkt það er.
Mikilvægast af öllu er þó að hugsa vel um tennur barnsins frá upphafi. Koma tvisvar á ári til tannlæknis með alla fjölskylduna og hafa jákvætt viðmót gagnvart tannlæknastofunni og heimsóknunum þangað.
