Tannhirða
Góð tannhirða er ekki einungis mikilvæg fyrir heilbrigði í munnholi, heldur líka fyrir alla almenna heilsu. Rannsóknir sýna tengsl milli munnheilsu og hjartasjúkdóma og sykursýki meðal annars. Góð tannhirða heima við og reglulegar tannhreinsanir hjá tannlækni ætti að vera hluti af almennu heilsufari og er jafn mikilvægt eins og að fara í ræktina og borða hollan mat.Það eru ekki allir eins og því ættir þú að biðja tannlækni eða aðstoðarmann hans um að kenna þér rétta tannhirðu við næstu tannlæknaheimsókn.
Mikilvægt er að nota tannþráð alltaf áður en byrjað er að nota tannbursta.
Tannþráðurinn er hugsaður til að “skafa” þau yfirborð tannarinnar sem tannburstinn nær ekki til. Honum er haldið stíft á milli fingranna eins og sýnt er á myndinni og vandlega skafið yfir þá hluta tannarinnar sem liggja að hvor öðrum
Tannburstun með flúortannkremi
Tannburstanum er hallað að tannholdinu í ca 45 gráður eins og sýnt er á myndinni, vandlega er farið yfir allan munninn og passað að gleyma ekki neinu svæði. Í lokin á EKKI að skola munninn heldur leyfa flúortannkreminu að liggja á tönnunum.
Gangi þér vel
Kveðja, starfsfólk.
