THEROZONE
Er ný og spennandi tækni sem felur í sér tæki sem framleiðir ozonerað vatn þ.e. breytir venjulegu vatni í ozonerað. En hvað gerir ozonerað vatn? Það hefur fyrst og fremst eiginleika til að útrýma bakteríum, veirum, sveppum o.s.frv.Hvernig getur það nýst í tannlækningum?
Á ýmsa vegu t.a.m. notað við tannhreinsun getur það haft veruleg áhrif á bólgu og blæðingu af völdum baktería sem er að finna í tannholdsbólgum.
Ef við erum að fjarlægja djúpa tannskemmd sem liggur nálægt taugaholinu og það litla lag af tannbeini sem skilur á milli er enn sýkt af bakteríum getum við sett dropa af ozoneruðu vatni yfir og svo þétta fyllingu. Það stuðlar að endurhæfingu þess tannvefs og drepur bakteríurnar.
Við lýsingu eða hvítingu tanna eru notuð ákveðin peroxíð efni sem eru talin verka fyrst og fremst á þann máta að virka efnið oxideri litarefnin sem hafa safnast fyrir í tannbeini sem er undir glerungnum og gefur tönn lit sinn. Það hefur verið sýnt fram á að setja dropa af Ozone á peroxíð efnið geti hjálpað enn frerkar við lýsingu tanna.
Möguleikarnir fyrir notkun ozoneraðs vatns eru fjölmargir í tannlækningum en einnig eru miklar framfarir í notkun þess í almennum lækningum t.d. ef maður er með hálsbólgu er hægt að skola með þessu og hjálpa til við bata.
Möguleikarnir eru taldir óþrjótandi og því verulega spennandi tækni.
