ICON

Helsta markmið tannlækninga er að varðveita heilbrigðan tannvef. Þegar byrjandi skemmdir birtast er helsta ráðið að beita góðri tannhirðu þ.m.t. flúormunnskol til að fá fram endurkölkun á skemmdinni. Hins vegar þegar skemmd er komin inn í tannbein þá þarf að bora og þá oftast fyrst í gegnum heilbrigðan tannvef til að komast að skemmdinni. Hingað til hafa þetta verið einu kostirnir
ICON er byltingarkennt efni sem var sérstaklega hannað til að varðveita heilbrigðan tannvef þ.e. ákveðnar skemmdir sem venjulega þarf að bora fyrir er hægt að bjarga án þess að bora.
Efnið er borið á byrjandi skemmdir og skemmdir sem eru lítillega komnar inn í tannbein, lokar þær af og skapar aðstæður fyrir endurkölkun.

Niðurstaðan fyrir sjúklingin er sú: Ekki þörf á deyfingu og varðveiting á heilbrigðum tannvef!

Meðferð felur í sér að lækna annarsvegar millitannaskemmdir og svo hinsvegar byrjandi skemmdir/hvíta bletti sem myndast umhverfis tannréttingarkubba sem límdir eru á tennurnar sem jafnframt bætir útlit tannanna.
 
TANNLÆKNAR | Hlíðasmára 17 | 201 Kópavogur | s: 562 6466 | f: 564 6642 | mottaka@tannlaekningar.is