Starfsfólk
| Sævar hefur haldið fjölda fyrirlestra á Íslandi og í útlöndum auk þess sem hann fæst við rannsóknir og blaðaskrif og hefur sinnt kennslu við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Sævar er mjög virkur í endurmenntun í sinni sérgrein. | |
| Hrönn Róbertsdóttir hronn@tannlaekningar.is Hrönn útskrifaðist úr tannlæknadeild Háskóla Íslands 1999. Hún hefur starfað í Hlíðasmára 17 frá 2003. Hrönn leggur mesta áherslu á fegrunartannlækningar í starfi sínu en sinnir auk þess öllum öðrum tannlækningum. Hrönn hefur verið mjög öflug í endurmenntun og sækir að meðaltali 3 - 4 námskeið erlendis á ári. | |
| Gunnar Ingi Jóhannsson gunnaringi@tannlaekningar.is Gunnar Ingi útskrifaðist úr tannlæknadeild Háskóla Íslands 2009. Hann hóf störf i Hlíðarsmára 17 árið 2009 en hefur starfað á stofunni síðastliðin þrjú sumur. Gunnar Ingi sinnir almennum tannlækningum í starfi sínu á stofunni. Gunnar er þegar farinn að sækja námskeið erlendis. | |
| Ásta Jakobína Ágústsdóttir Ásta Bína útskrifaðist sem sjúkraliði 1975. Hún hefur sinnt margvíslegum störfum með fólki t.d. á sjúkrahúsi Vestmannaeyja og dvalarheimili aldraðra í Vestmannaeyjum, Landakotsspítala og Sólvangi í Hafnarfirði. Hún hefur starfað á tannlæknastofunni frá 2004. Hún hefur verið dugleg við endurmenntun. | |
| Birna Gunnlaugsdóttir tanntæknir og sjúkraliði Birna er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún útskrifaðist úr Sjúkraliðaskóla Íslands 1979 og vann í sex ár á barnadeild Hringsins á Landspítalanum. Vann síðan á tannlæknastofu Þórðar Eydal tannréttingasérfræðings. Hún útskrifaðist sem tanntæknir 1999 og hefur starfað á tannlæknastofunni allar götur síðan. Birna sér um daglegan rekstur stofunnar. | |
| Helga Gestsdóttir móttökuritari mottaka@tannlaekningar.is Helga hefur starfað á tannlæknastofunni frá 2006 og hefur umsjón með bókunum og öðrum störfum í móttöku. Helga starfar líka sem rope yoga kennari. Helga starfaði áður á skrifstofu Háskóla Íslands. | |
| Helga Haraldsdóttir sjúkraliði Helga útskrifaðist sem sjúkraliði árið 1970 og hefur starfað á tannlæknastofunni frá árinu 1995 aðallega við skurðaðgerðir. Helga hefur auk þess sótt fjölmörg námskeið og sérhæft sig í meðferð við kvíða og streitu sjúklinga á tannlæknastofunni. | |
| Nila Flores Sicat aðstoðarstúlka Nila hefur unnið á stofunni frá árinu 2005 og sinnir sótthreinsun og öðrum mikilvægum störfum eins og t.d. gagnaöflun (ljósmyndir og máttökur). Auk þess er hún listakokkur. | |
| Svandís Steingrímsdóttir tanntæknir Svandís útskrifaðist sem tanntæknir árið 1993. Hún hóf störf á tannlæknastofu á Vopnafirði árið 1989 og hefur unnið á tannlæknastofum síðan, m.a. hjá sérfræðingi í barnatannlækningum þar sem hún öðlaðist mikla reynslu af tannlækningum barna og fatlaðra, Hóf störf á tannlæknastofunni Hlíðasmára 2005. | |
| Rakel Sigurjónsdóttir Rakel lauk prófi frá Heilbrigðisskólanum með hæðstu einkunn frá námsbraut tanntækna árið 2008. Hún hefur mikla reynslu af umönnun. | |
