Hvað er glerungseyðing tanna?

Glerungseyðing er vaxandi vandamál hjá íslenskum unglingum - en hvað er
glerungseyðing tanna? Glerungseyðing er það kallað þegar sýra leysir upp
tannvef.

Glerungur á yfirborði tanna
Ysta lag tannarinnar nefnist glerungur. Glerungurinn er harðasti vefur
líkamans og er 95% steinefni en að öðru leyti vatn og lífræn efni.

Hvað gerist?

Matarklukka
Þegar þú drekkur eða borðar eitthvað sem er súrt, eins og t.d. gosdrykki,
getur það skaðað tennurnar.Ysta lag glerungsins leysist upp. Mjög þunnt
lag af yfirborði tannarinnar skolast burt og kemur ekki aftur.

Form tannanna breytist. Fyllingar í jöxlum virðast rísa upp yfir
glerunginn sem áður var þeim jafnhár. Glerungur framtanna eyðist að
innanverðu og við það þynnast tennurnar. Í fyrstu er glerungseyðing
sársaukalaus og erfitt er að sjá hana sjálfur. Á seinni stigum geta
tennurnar hins vegar orðið næmari fyrir kulda og hita og viðkvæmar þegar
þær eru burstaðar.

Hvað er súrt?

Drykkir
Í sykruðum og sykurlausum gosdrykkjum og ávaxtasöfum er sýra og þeir geta
því leyst upp glerunginn. Mjólk og vatn, með og án goss, leysir ekki upp
glerunginn.

Matur
Ávextir eru hollir - borðaðu gjarnan nokkra á dag. Í einstaka tilfelli
getur mikil og tíð neysla mjög súrra ávaxta skaðað glerunginn.

Uppköst og bakflæði
Tíð uppköst þar sem magasýrur koma upp í munnholið (bakflæði)geta leyst
upp glerunginn.

Sælgæti
Ef mikið er borðað af súru sælgæti, t.d. víngúmmi, getur það leyst upp
glerunginn. Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja glerungseyðingu? Það
er margt sem getur skemmt tennur - og jafnvel þó þær séu burstaðar daglega
þá getur glerungurinn eyðst. En hér eru nokkur fyrirbyggjandi ráð:

  • Takmarka neyslu súrra drykkja og matvæla og neyta þeirra eingöngu á matmálstímum.
  • Ljúka við súra drykkinn á stuttum tíma, frekar en að vera að dreypa á honum í langan tíma.
  • Skola munninn vel með vatni eftir að hafa fengið sér eitthvað súrt.
  • Bursta ekki tennurnar strax eftir súran mat eða drykk því hætta er á að bursta burt tannvef sem er viðkvæmur eftir sýruna.
  • Nota alltaf tannbursta með mjúkum hárum og tannkrem með litlum eða engum slípiefnum.
  • Drekka frekar vatn eða mjólk í stað súrra drykkja.


Ert þú með glerungseyðingu?
Þegar þú ferð í tanneftirlit fáðu tannlækninn þinn til að athuga það og
farðu jafnframt yfir neysluvenjur þínar.

Smelltu

 
TANNLÆKNAR | Hlíðasmára 17 | 201 Kópavogur | s: 562 6466 | f: 564 6642 | mottaka@tannlaekningar.is