Barnatennurnar
Börn hafa vanalega tuttugu barnatennur. Hér er spjald sem segir hvernær þær koma og detta.| Aldur við komu | Aldur þegar detta | |
| Neðri góms framtennur | 6 - 9 mánuðir | 6-7 ára |
| Efri góms framtennur | 7 - 10 mánuðir | 7-8 ára |
| Augntennur uppi og niðri | uþb 1 árs | 10 - 12 ára |
| Fremri barnajaxlar | milli 1 og 1,5 ára | 10 -12 ára |
| Aftari barnajaxlar | um 2 ára | 10 - 12 ára |
Sex ára jaxlar eru vanalega fyrstu fullorðinstennurnar til að koma í munninn og þær koma fyrir aftan aftari barnajaxlana. Engar tennur þurfa að detta til að þær komist fyrir. Þær koma vanalega um 6 -7 ára aldur..
Þegar þú heimsækir tannlækninn færðu að vita að allt sé að gerast á réttum tíma og í eðlilegri röð. Ef fullorðinstennur eru farnar að gægjast í gegnum holdið en barnatönnin ennþá föst á sínum stað er ráðlegt að fjarlægja barnatönnina..
Algeng spurning foreldra og áhyggjuefni er hve miklu gulari fullorðinstennurnar eru en barnatennurnar. Þetta er eðlilegt og stafar af gulari lit á tannbeini fullorðinstanna en barnatanna.
Kveðja, starfsfólk.
