Rótfyllingar, hvað er það?
Það þarf að framkvæma rótfyllingu þegar sýking hefur orðið í taugaholi tannarinnar.
Þegar sýking á sér stað sendir líkaminn hvítar blóðfrumur og mótefni til að berjast gegn sýkingunni, við það bólgnar vefurinn inní tönninni og þar sem rótarholið er svo lítið er ekki pláss fyrir bólguna og segja má að vefurinn kyrki sjálfan sig, þe æðar klemmast vegna bólgu og næring kemst ekki á réttan stað og vefurinn deyr.
Í rótarmeðferð tekur tannlæknirinn sýkta vefinn úr tönninni og sótthreinsar, þetta getur tekið þrjár heimsóknir til tannlæknis, á endanum er svo sett varanleg fylling í rótarganginn í staðinn fyrir sýkta vefinn.
Þessi meðferð er vanalega sársaukalaus fyrir sjúklinginn.
Kveðja, starfsfólk.
