Blæðing úr gómum á meðgöngu.

Blæðing og særindi í gómum meðan burstað er eða þegar tannþráður er notaður er algeng kvörtun meðan á meðgöngu stendur. Þetta er tilkomið vegna aukins magns prógesteróns í blóði sem veldur því að gómar verða viðkvæmari fyrir bakteríum og veldur þar að auki auknu blóðflæði til tannholdsins. Þetta er kallað óléttu tannholdsbólgur, og kemur fram í um það bil helming óléttra kvenna.

Það geta líka komið fram hnúðar á tannholdið sem blæðir úr þegar burstað er. Þetta er frekar sjaldgæft og er í raun góðkynja æxlisvöxtur sem er algerlega skaðlaus og á að hverfa þegar óléttu er lokið. Ef hann hverfur ekki er ráðlagt að fjarlægja hann.

Blæðandi góma á meðgöngu ætti alltaf að taka alvarlega þar sem þetta er í raun byrjunarstig annars sjúkdóms sem er alvarlegtir og allir ættu að leita tannlæknis ef um blæðandi góma er að ræða. Sýnt hefur verið framá að konum sem þjást af þessu eru líklegri til að fæða börn sín fyrir tímann.

Ef einhverjar spurningar vakna vinsamlegast hafið samband við tannlækni.

Kveðja, starfsfólk.

 
TANNLÆKNAR | Hlíðasmára 17 | 201 Kópavogur | s: 562 6466 | f: 564 6642 | mottaka@tannlaekningar.is