Reykingar og áhrif þeirra
Reykingar og áhrif þeirra á munninn.
Auk þess að lita tennur okkar og gera þær leiðinlegri að horfa, hafa reykingar falin áhrif á restina af munninum.
Allir vita að reykingar hafa gríðarleg áhrif á almenna heilsufarið, og þar sem reykurinn er tekinn inní líkamann í gegnum munnholið má segja að áhrifanna gæti fyrst þar. Hér á eftir er tölfræði og fræðsla um áhrifin.
Reykingafólk er td fimm sinnum líklegri til að fá krabbamein í munninn en þeir sem ekki reykja, og þessi krabbamein eru mjög skæð og getur verið ómögulegt að komast í veg fyrir þau. Reykingafólk er sex sinnum líklegra til að fá sýkinga og bólgusjúkdóma í munnholið, beinlos, andremma og að lokum tap tanna og andlitsfalls eru fylgisveinar þessa sjúkdóms.
Ein sígaretta lækkar blóðþrýsting um 40 % strax eftir að hennar er neytt
Sár gróa mikið hægar en ella Háræðar í tannholdi dragast saman og þar af leiðandi kemst varnarkerfi líkaman ekki eins hratt á réttan stað til að drepa bakteríur. Implönt sem komið hefur verið fyrir í munni eru líklegri til að losna og valda vandamálum.
Fleira má telja.
Ef eitthvað af eftirfarandi einkennum má finna hjá þér ættir þú að snúa þér strax til tannlæknis og láta athuga munnheilsuna.
- Andremma.
- Lausar tennur.
- Gerfitennur sem passa illa, og særa.
- Bólgið og blæðandi tannhold.
- Fyrirferð í munni sem þú hefur ekki tekið eftir áður.
Að lokum má nefna að lýðheilsustöð er með frábæra heimasíður með allskyns fræðslu sem viðkemur reykingum, og þá sérstaklega hvernig best sé að hætta þeim.
www.lydheilsustod.is
Kveðja, starfsfólk.
